Project Description

Lónfell

Söguganga Hringleið

Erfiðleikastig3
Tími göngu 3 klst.
Lengd göngu 5-6 km
Hækkun 300 m
Skoða á korti

Skylduganga á fornfrægt fjall. Héðan var landinu gefið nafnið Ísland. Nokkuð erfið vegna grófs undirlags en hvorki löng né mikil hækkun. Gestabók á toppnum.

Fjallið þaðan sem Ísland hlaut nafn sitt er Hrafna-Flóki Vilgerðarson gekk á það með fólki sínu. Fjallið er formfagurt og áberandi úr Vatnsfirðinum, ekki síst frá Grund þar sem Hrafna-Flóki byggði bæ sinn og dvaldi veturlangt við illan kost. Lónfellið gnæfir upp af Penningsdalnum hvaðan maður getur ætlað að Flóki og hans fólk hafi gengið á fjallið enda þægilega aflíðandi ef maður setur sig í spor landnámsmanna.

Tvær gönguleiðir eru algengastar á fjallið og er hvorug sú sem ætla mætti að Flóki og hans fólk hafi farið – þá leið fara þó stöku smalar enn í dag í öðrum erindagjörðum. Göngufólk ekur upp á Dynjandisheiði upp úr Penningsdal og leggur á fjallið frá skilti sem markar upphaf göngu eða í Helluskarði vilji fólk frekar ganga fjallahryggi en –dali. Hækkun er um 300 metrar. Leiðin er nokkuð stórgrýtt, sérstaklega þegar kemur að fjallinu, og hvergi fljót yfirferðar.